Hofskirkja á Öræfum

Elsta heimild um kirkju í Hofi er í máldaga frá 1343 og var hún þá bændakirkja, helguð heilögum Klemens. Síðar varð kirkjan útkirkja frá Sandfelli. Kirkjan sem nú stendur var reist á árunum 1883-85 af Páli Pálssyni forsmið og snikkara frá Hörgsdal. Hún er með timburgrind úr bindingsverki, en steinhlöðnum langveggjum og helluþaki, þöktu torfi.
Stafnar eru úr timbri með tveimur sexrúðu gluggum hvor, auk þess semtveggjarúðu gluggi er á bjórþili vesturstafns. Kirkjan er sjö stafgólf, 9,8 m álengd og 4,5 m á breidd. Um miðja 20. öld var húsið orðið mjög hrörlegt ogbeitti þjóðminjavörður sér þá fyrir því að reisa hana aftur í upphaflegri mynd.Náðust samningar milli Þjóðminjasafnsins og sóknarnefndar um að safnið fengikirkjuna til eignar gegn því að það kostaði viðgerð hennar en hún yrðijafnframt sóknarkirkja Öræfinga. Hún var síðan tekin niður og endurbyggð áárunum 1953-54. Nokkrar viðgerðir hafa verið gerðar á henni síðan.
Byggingarlýsingu Guðmundar L. Hafsteinssonar má nálgast hér:


Hofskirkja er sérkennileg blanda af gömlu og nýju. Þannig er gaflhlað við austurstafn fornlegt en að innanverðu er kirkjan nýstárlegri en bæði Víðimýrar- og Saurbæjarkirkjur þar sem hvorki er hér að finna hefðarsæti né hefðbundið kórþil. Kirkjugarðurinn umhverfis kirkjuna er með upphlöðnum leiðum samkvæmt gamalli hefð, og er kirkjan og allt umhverfi hennar hið fegursta.