Bustarfell í Vopnafirði

Á Bustarfelli stendur stór og glæsilegur torfbær sem verið hefur í vörslu Þjóðminjasafnsins frá 1943. Minjasafnið á Bustarfelli er til húsa í bænum en þar má meðal annars sjá gamla muni úr bænum og úr eigu Bustarfellsættarinnar.
Minjasafnið á Bustarfelli er til húsa í bænum og eru munir úr búi MethúsalemsMethúsalemssonar bónda á Bustarfelli (1889-1969) uppistaða safnsins. Hann lagðimikla rækt við að halda til haga gömlum munum úr bænum og í eiguBustarfellsættarinnar. Minjasafnið var gert að sjálfseignarstofnun 1982 ogmunirnir þá afhentir Vopnfirðingum að gjöf.
Byggingarlýsingu Guðmundar L. Hafsteinssonar má nálgast hér:


Bustarfell er fornt höfuðból og ein stærsta jörð í Vopnafirði. Jörðin hefur verið í sjálfsábúð sömu ættar frá 1532. Torfbærinn sem nú stendur er að stofni til mjög gamall, hlutar hans standa enn frá því bærinn var endurbyggður eftir mikinn bruna 1770, en um aldur einstakra bæjarhúsa er erfitt að fullyrða nokkuð með vissu.
Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á húsaskipan á liðnum öldum. Að stórum hluta er bærinn þó eftir Einar Einarsson staðarbónda og Árna Jónsson snikkara frá Hólum í Vopnafirði, frá seinni helmingi 19. aldar. Búið var í bænum fram til 1966 og ber hann þess nokkur merki. Vindrafstöð var sett upp 1942 og rafmagn til ljósa leitt í bæinn. Ári síðar var vatnsleiðslu komið í bæinn og 1944 var miðstöðvarhitun komið þar fyrir.