Ljósmyndasafn Íslands - verðskrá

Ljósmyndasafn Íslands

Viltu kaupa ljósmynd eða birtingarrétt á myndum safnsins?

Útgefendur, kvikmyndagerðafólk, sérfræðingar og allir áhugasamir geta keypt eða leigt eftirtökur af myndum safnins.

  • Ef keyptar eru fleiri en 7 myndir er veittur 30% afsláttur.
  • Söfn fá 50% afslátt vegna sýninga og útgáfu.
  • Allar myndir eru afhentar rafrænt í 300 punkta upplausn. Fyrir viðbótar myndvinnslu er greitt samkvæmt gjaldskrá.

Vinsamlega kynnið ykkur skilmála og við aðstoðum ykkur eftir bestu getu.

Senda tölvupóst

Verðskrá

Almenn þjónusta

Þjónusta

Verð með vsk

Innskönnun

750 kr.

Rafræn mynd til einkanota

2.500 kr.

Tímavinna sérfræðings

16.864 kr.

Höfundar- og birtingarréttur

Miðill

Höfundar og
birtingarréttur

Birtingarréttur

Bækur: forsíða / innsíða

22.400 kr.

11.200 kr.

Bækur, endurútgáfa: forsíða / innsíða

9.000 kr.

4.500 kr.

Sjónvarp / kvikmyndir

22.400 kr.

11.200 kr.

Dagblöð / tímarit

22.400 kr.

11.200 kr.

Dagblöð / tímarit, færri en 300 eintök

11.200 kr.

5.600 kr.

Ráðstefnur: skýrslur

11.200 kr.

5.600 kr.

Ráðstefnur: fyrirlestrar

6.000 kr.

3.000 kr.

Ráðstefnur: upplýsingaskilti

11.200 kr.

5.600 kr.

Auglýsing í prentmiðli, heil / hálf síða

38.000 kr.

19.000 kr.

Auglýsingarherferð

89.200 kr.

44.600 kr.

Vefsíða fyrirtækis

29.800 kr.

14.900 kr.

Vefsíða einstaklings

6.000 kr.

3.000 kr.

Vefsíða félagasamtaka

15.600 kr.

7.800 kr.

Myndir á sýningu

22.400 kr.

11.200 kr.

Skreytingar fyrirtækja / stofnana

22.400 kr.

11.200 kr.

Vörur / minjagripir

14.800 kr.

7.400 kr.

Nemendaritgerðir, allt að 5 myndir

3.500 kr.

1.750 kr.

Kennsla, fyrirlestrar, allt að 5 myndir

3.500 kr.

1.750 kr.

Skilmálar vegna afnota á ljósmyndum í vörslu Þjóðminjasafnsins

1.    Viðskiptamanni er ljóst að ljósmyndin kann að vera háð höfundarétti samkvæmt 1. eða 49. gr. höfundalaga nr. 73/1972 og skuldbindur sig til að öll notkun hans á ljósmyndinni samrýmist ákvæðum laganna.

2.    Þjóðminjasafn Íslands heimilar viðskiptamanni, eftir atvikum í umboði rétthafa höfundaréttar, afnot ljósmyndarinnar með þeim skilmálum er greinir í afnotaleyfi þessu. Viðskiptamanni er ljóst að enginn einkaréttur fylgir afnotaleyfinu.

3.    Heimil afnot af ljósmyndinni takmarkast við persónuleg not viðskiptamanns og/eða þau not sem tilgreind eru í pöntun. Sé um að ræða gerð eintaka (svo sem prentuð eða fjölfölduð rit, aðra prentgripi, minjagripi, o.s.frv.) takmarkast heimiluð not við þá útgáfu og eintakafjölda sem tilgreint er í pöntun. Sé um að ræða að verk er gert aðgengilegt almenningi (svo með með því að sýna það opinberlega, með notkun á neti, o.s.frv.) takmarkast heimiluð not, nema öðruvísi sé um samið, við það tilefni og tímabil sem tilgreint er í pöntun). Heimil afnot takmarkast ætíð við það tímabil sem tilgreint er í pöntun.

4.    Geta skal nafns höfundar og Þjóðminjasafns Íslands á eintökum sem gerð eru á grundvelli afnotaleyfis þessa og við birtingu, eftir því sem við á, sbr. 4. gr. laga nr. 73/1972.

5.    Óheimilt er með öllu að gera ljósmyndina aðgengilega á samfélagsmiðlum, svo sem Facebook, Instagram, Twitter, o.s.frv.

6.    Eftir að ljósmynd hefur verið nýtt ber viðskiptamanni eigi síðar en 30 dögum eftir að vinnslu lýkur að eyða eintökum sem notuð hafa verið við vinnsluna.

7.    Viðskiptamaður skuldbindur sig til að afhenda Þjóðminjasafni Íslands eitt eintak af útgáfu sem framleidd er á grundvelli afnotaleyfis þessa.

8.    Afnotaleyfi þetta einskorðast við viðskiptamann og er ekki framseljanlegt.

9.    Reynist nauðsynlegt að höfða mál vegna ágreinings um afnotaleyfi þetta skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Sarpur

Yfir milljón ljósmyndir eru skráðar í gagnagrunninn Sarp

A boat in the sea
Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.