Þjóðminjasafnið óskar eftir að ráða sérfræðing í skráningu

Þjóðminjasafn Íslands leitar að öflugum einstaklingi í starf sérfræðings í skráningu. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á safnastarfi og menningarsögu.

Í boði er áhugavert starf á munasviði þar sem hópur sérfræðinga vinnur að faglegu safnastarfi og þjóðminjavörslu, þ.e. söfnun, skráningu, varðveislu, rannsóknum og miðlun safnkosts. Aðalstarfsstöð viðkomandi starfsmanns verður á Tjarnarvöllum 11 í Hafnarfirði.

Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi, þar sem sköpun, fræðsla og varðveisla menningararfsins fléttast saman í hvetjandi og framsæknu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Skráning í skráningarkerfið Sarp

• Vinna við afgreiðslu pantana á ljósmyndum

• Umsýsla með safnkost

• Þjónusta við einstaklinga og stofnanir

• Móttaka og úrvinnsla fyrirspurna

• Þátttaka í öðrum verkefnum á munasviðis

Hæfniskröfur

• Háskólapróf (BA/BS) sem nýtist í starfi

• Menntun og/eða reynsla á sviði varðveislu og meðhöndlun ljósmynda er kostur

• Reynsla af safnastarfi æskileg

• Reynsla af skráningu í skráningarkerfi æskileg

• Góð færni í íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli

• Góð almenn tölvufærni

• Skipulagshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót

• Frumkvæði, nákvæmni og metnaður í starfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun og höfuðsafn á sviði menningarminja og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands starfar á grundvelli safnalaga nr. 141/2011, lögum um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011 og lögum um menningarminjar nr. 80/2012.

Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um enda er við ráðningar í störf hjá safninu tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar.

Um hlutastarf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í haust.

Umsókn skulu fylgja yfirlit og greinargóðar upplýsingar um störf umsækjenda og menntun ásamt kynningarbréfi, á íslensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfs eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum.  Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtölum og umsagna sem aflað er.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 70%

Umsóknarfrestur er til og með 15.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ágústa Kristófersdóttir, framkvæmdastjóri munasviðs - agusta@thjodminjasafn.is - s: 620-7744

Sótt er um starfið hér.

Myndir

No items found.
Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.