Spurningaskrá - Jarðhræringar á Reykjanesi
.jpg)
Þjóðminjasafn Íslands, í samstarfi við Grindavíkurbæ og Minja-og sögufélag Grindavíkur, safnar nú upplýsingum um viðhorf og upplifanir fólks af jarðhræringum sem staðið hafa yfir frá árinu 2019. Leitast er við að safna frásögnum af atburðunum og þá sérstaklega rýmingu Grindavíkurbæjar og áhrifum á íbúa og samfélag. Gögn þjóðháttasafns Þjóðminjasafnsins eru dýrmætar heimildir fyrir almenning sem og rannsakendur. Þau eru varðveitt á menningarlegasögulega gagnagrunninum Sarpi.
Atburðirnir á Reykjanesi síðan 2019 hafa markað djúp spor í íslenskt samfélag. Spurningaskráin er opin öllum til svörunar en þessir atburðir höfðu áhrif á íslenskt samfélag í heild sinni og mikilvægt er að sem flestar raddir fái að heyrast.
Slíkar frásagnir verða þegar fram líða stundir ómetanlegar heimildir um afar sérstæða atburði í sögu Íslands.
Viljir þú leggja okkur lið og deila reynsluþinni getur þú nálgast spurningaskrána HÉR.