Rannsóknarstaða í nafni dr. Kristjáns Eldjárns – Umsóknir óskast
Þjóðminjasafn Íslands leitar að fræðimanni í rannsóknarverkefni til 12 mánaða tengda nafni dr. Kristjáns Eldjárns. Í ár verður sérstök áhersla lögð á rannsóknir á sviði fatnaðar, textíla og búninga í safnkosti Þjóðminjasafns Íslands. Leitað er að fræðimanni með skýra rannsóknarsýn og metnaðarfulla nálgun sem styrkir og eflir fræðastarf safnsins.

Þjóðminjasafn Íslands auglýsir lausa 12 mánaða rannsóknarstöðu tengda nafni dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands, sbr. 3. gr. a. laga umÞjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011 og reglugerð um Þjóðminjasafn Íslands nr.896/2006.

Samkvæmt reglugerðinni er staðan „ætluð fræðimönnum sem sinna rannsóknum á sviði íslenskrar menningarsögu sem fellur undir starfssvið Þjóðminjasafns Íslands.“
Í ár verður sérstök áhersla lögð á rannsóknir á sviði fatnaðar, textíla og búninga í safnkosti Þjóðminjasafns Íslands.

Um rannsóknina

Umsækjendur skulu leggja fram vel af markaðrannsóknarverkefni. Mögulegt er að tengja verkefnið við rannsóknir sem þegar eru í gangi eða hafa verið unnar innan safnsins. Við val í stöðuna verður m.a. tekið mið af rannsóknarstefnu Þjóðminjasafnsins og stöðu þess sem háskólastofnunar.

Afhending og miðlun niðurstaðna

Verkefni, eins og það er afmarkað, lýkur með formlegum verklokum að samningstíma liðnum. Stefnt skal að því að rannsóknarniðurstöður verði birtar á viðurkenndum fræðilegum vettvangi, kynntar innan safnsins til dæmis með fyrirlestri, sýningu eða öðrum hætti og jafnframt varðveittar í Þjóðminjasafni Íslands. Um er að ræða 12 mánaða rannsóknarstöðu, með möguleika á framlengingu.

Umsókn og fylgigögn

Umsókn skal innihalda: Verkefnislýsingu með rannsóknaráætlun, útgáfu-, fræðslu- og kynningaráætlun, ferilskrá og afrit prófskírteina og sendist á netfangið ingibjorg.edvaldsdottir@thjodminjasafn.is í síðasta lagi 18. nóvember 2025.

Launakjör eru ákvörðuð af þjóðminjaverði í samræmi við reglugerð nr. 896/2006, innan marka kjarasamninga og fjárheimilda eins og segir í reglugerð.

Nánari upplýsingar veita: Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður: harpa.thorsdottir@thjodminjasafn.is eða Ingibjörg Eðvaldsdóttir mannauðsstjóri – ingibjorg.edvaldsdottir@thjodminjasafn.is

Myndir

No items found.
Stay tuned

Subscribe to our newsletter

Subscribe to the Museum's newsletter and receive invitations to exhibition openings, news about events and lectures, and special offers in the Museum Shop.

Thanks! Check your inbox and click the link to confirm your subscription.
Something went wrong. Please try again.