Hilmuskóli – listasmiðjur fyrir börn: Leyndarmál í línum og mynstri

Verið velkomin í ævintýralega röð af listasmiðjum í Þjóðminjasafninu þar sem við sökkvum okkur inn í heim myndlistarinnar hennar Hilmu af Klint.
Hilmuskóli fer fram alla sunnudaga í maí og hefst kl. 14:00.
Hver tími stendur í um 1,5 klukkustund, og eru foreldrar beðnir um að vera með börnunum á meðan smiðjan fer fram. Enginn aðgangseyrir er í smiðjurnar og börn geta komið í staka smiðju eða allar smiðjurnar, og allt þar á milli.
Leyndarmál í línum og mynstri - Hliðstæður í formteikningu
Í þessum tíma opnum við dyr að dularfullumheimi fyrstu Musterismálverka Hilmu af Klint. Við skoðum hvernig listakonan notaði form og mynstur til að segja sögur um heiminn í kringum okkur – og jafnvel heiminn sem við sjáum ekki. Við uppgötvum hvernig eitt form getur táknað margt í einu. Spírall getur verið snigill… eða heil vetrarbraut. Hringur getur orðið að plánetu, frumu eða atómi. Bylgjur geta minnt á ljós, orku eðaöldur hafsins. Innblásin af þessum dularfullu táknum munum við skapa okkareigin myndverk og leyfa litum, línum og mynstrum að leiða okkur í skapandiævintýri.
Um Hilmuskóla
Í Hilmuskólanum er hver listasmiðja eins og ferðalag. Við fylgjum vísbendingum úr verkum Hilmu – litum hennar, hringjum, línum og dularfullum táknum – og leyfum þeim að leiða okkur inn í skapandi rannsókn á tilbrigðum náttúrunnar. Hvað leynist undir yfirborðinu? Hvaða mynstur birtast þegar við hlustum álitina og leyfum formunum að tala? Verkefnin verða fjölbreytt og skapandi, þar sem þátttakendur fá að prófa ólíkar aðferðir, liti og form. Tímarnir verða þannig ævintýraleg samþætting listar, ímyndunar og uppgötvunar – þar sem sköpun, forvitni og dulúð fá að vaxa saman.
Hilmuskóli – þar sem listin opnar dyr að hinu ósýnilega!
Freyja Eilíf leiðir listasmiðjurnar og eru þær hluti af meistaraverkefni hennar í listkennslunámi við Háskóla Íslands. Þannig er um að ræða samstarfsverkefni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnsins.
Freyja Eilíf hefur reynslu af kennslu ágrunnskólastigi og leggur áherslu á skapandi og forvitnilega nálgun þar sem börn fá að kanna heim listarinnar á eigin forsendum. Athugið að óskað er eftir leyfi til að taka ljósmyndir af verkum barnanna. Myndirnar verða notaðar viðgerð námsgagna í lok listasmiðjanna.











