Vilt þú fá styrk til viðburðahalds í sundlaugum landsins?
Í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO yfir óáþreifanlega menningararfleifð heims auglýsir menningar-,nýsköpunar- og háskólaráðuneytið í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins.

Markmið styrkjanna er að stuðla að fjölbreyttu viðburðahaldi í sundlaugum um allt land. Viðburðunum er ætlað hvoru tveggja að vekja athygli á sundlaugamenningu og auðga menningarlíf í heimabyggð og nærumhverfi. Viðburðir skulu fara fram á árinu 2026.

Hvatt er til samstarfs sveitarfélaga (rekstraraðila sundlauga), safna og menningarstofnana, félagasamtaka og einstaklinga um viðburði, og þarf staðfesting á samstarfinu að fylgja með umsókninni.

Til úthlutunar eru 4 milljónir kr. Hámarksstyrkur er 500 þús. kr.

Umsóknarfrestur er til 20. mars 2026. Umsóknir skulu berast í gegnum umsóknagátt ráðuneytisins: https://minarsidur.hvin.is/#/

Ljósmynd: Kristinn Guðmundsson. (1975-1987). Laugardalslaug. Fólk í pottum og í sólbaði undir trévegg.
Safnnúmer A: KG-62

Myndir

No items found.
Stay tuned

Subscribe to our newsletter

Subscribe to the Museum's newsletter and receive invitations to exhibition openings, news about events and lectures, and special offers in the Museum Shop.

Thanks! Check your inbox and click the link to confirm your subscription.
Something went wrong. Please try again.