Jólasveina-strætó ekur leið 1

Jólasveinarnir heimsækja safnið kl. 11 þann dag sem þeir kom til byggða, alla daga, frá 12.-24. desember. Jólasveinarnir hafa heimsótt Þjóðminjasafnið og skemmt börnum á safninu frá árinu 1988. Öllum er velkomið að koma á daglega jólasveina-skemmtun í safninu í desember, en jólasveinninn, og um helgar einnig jólaskellur, syngur jólalög með gestum undir píanóleik.
Í gær sótti jólasveina-vagninn nemendur við leikskólann Austurborg og ók þeim í Þjóðminjasafnið þar sem þau þáðu jólaleiðsögn um safnið. Stekkjastaur og systir hans, jólaskellan Leppatuska, gerðu sér snemmbúna ferð til byggða og fylgdu börnunum og sungu með þeim jólalög fyrir utan safnið, auk þess að versla inn skógjafir og skoða nýja jólasveina-strætóinn. Að því loknu var ferð Stekkjastaurs, Leppatusku og jólasveina-vagnsins heitið að barnaspítala Hringsins þar sem Stekkjastaur og Leppatuska skemmtu börnum.
Jólasveina-vagninn mun aka leið 1 og verður sérstaklega merktur á kortinu í Klapp-appinu og því upplagt að gera sér ferð í Þjóðminjasafnið með strætó!




