Bókin er gefin út í tengslum við samnefnda sýningu í Bogasal. Ritið veitir innsýn í þann þátt menningararfsins úr safnkosti Þjóðminjasafns Íslands sem er á sýningunni og tengist íslenska hestinum.

Hér er meðal annars fjallað um söðla og það handverk sem var notað til að prýða þá. Rýnt er í drifið látún þar sem birtast blómstrandi jurtir og framandi dýralíf í heillandi myndum. Hin séríslensku glituðu söðuláklæði eru einnig til vitnis um listfengi þeirra sem sköpuðu þessa ríkulegu arfleifð.

Ritstjóri er Anna Lísa Rúnarsdóttir. Greinahöfundar eru Ingunn Jónsdóttir, Ragnheiður Björk Þórsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Ritið inniheldur samantekt á ensku / English summary.

Author
Ýmsir
Year of Publication
2018