Í þessu viðamikla verki leiðir höfundur lesendur gegnum fyrstu öld ljósmyndunar á Íslandi af mikilli þekkingu. Saga ljósmyndunar í öllum sínum margbreytileika er sögð frá frumskeiði hennar um miðja 19. öld og fram til stríðsloka.

Til hagræðis fyrir erlenda lesendur hefur þessi bókarhluti verið þýddur á ensku. Í sérstöku ljósmyndaratali er gefin mynd af öllum sjálfstætt starfandi ljósmyndurum á tímabilinu og birt vandað sýnishorn ljósmynda eftir hvern og einn þeirra.

Bókina prýða hátt á fimmta hundrað ljósmyndir sem sýna þróun ljósmyndunar og veita jafnframt fágæta sýn á þjóðina, sögu hennar og menningu. Allar myndir ljósmyndaranna eru birtar óbreyttar og í upprunalegum lit og margar þeirra hafa ekki áður birst á prenti.

Bókin er skrifuð af helsta sérfræðingi þjóðarinnar í ljósmyndasögu, Ingu Láru Baldvinsdóttur, sem starfaði í Þjóðminjasafni Íslands í áratugi.

Author
Inga Lára Baldvinsdóttir
Year of Publication
2001