Books
Endurkast - Íslensk samtímaljósmyndun

Í tilefni ljósmyndasýningarinnar Endurkast árið 2008 var vegleg og að mörgu leyti óvenjuleg ljósmyndabók gefin út sem gefur glögga mynd af sýningunni og þeim viðfangsefnum sem nútímaljósmyndun fæst við. Bókinni er ætlað að varpa ljósi á stöðu ljósmyndunar í íslenskri myndlist og skoða viðfangsefni og nálgun ljósmyndara sem unnið hafa með ljósmyndun sem listmiðil.
Á sýningunni voru myndir átta íslenskra ljósmyndara sem mynduðu Félag íslenskra samtímaljósmyndara.
Ljósmyndaranir átta eru: Katrín Elvarsdóttir, Pétur Thomsen, Ívar Brynjólfsson, Bára Kristinsdóttir, Einar Falur Ingólfsson, Bragi Þór Jósefsson, Spessi og Þórdís Ágústsdóttir.
Textahöfundar bókarinnar eru Sigrún Sigurðardóttir og Hjálmar Sveinsson.
Author
Sigrún Sigurðardóttir, Hjálmar Sveinsson
Year of Publication
2008