Hvenær
October 18, 2026
Kl. 14
Hvar
Bogasalur

Þjóðminjasafn Íslands býður upp á spennandi uppákomur alla sunnudaga yfir vetrar- og vormánuði. Fyrsta sunnudag í mánuði er boðið upp á dagskrá fyrir börn og fjölskyldur, aðra sunnudaga leiðsögn sérfræðinga um sýningar safnsins en síðasta sunnudag í mánuði fer sérfræðileiðsögnin fram á erlendu tungumáli.

Sunnudaginn 18. september kl. 14:00 verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna Með sögu í farangrinum – Brúðarbúningurinn. Guðrún Hildur Rosenkjær, sagnfræðingur og meistari í kjóla- og búningasaum, og Ásmundur Kristjánsson, gullsmiður, munu ræða handverkið að baki brúðarbúningnum og veita innsýn í gerð hans.

Einn ríkulegasti kvenbúningur í sögu landsins var lengi talinn hafa glatast í skipsskaða undan ströndum Íslands árið 1809. Síðar kom í ljós að svo var ekki og árið 1963 fannst búningurinn óvænt í safni Viktoríu og Alberts í Lundúnum. Sá fundur markaði tímamót í íslenskum búningarannsóknum.

Guðrún Hildur hefur um árabil helgað störf sín rannsóknum, endurgerð og miðlun íslenskra búninga. Í verkum sínum sameinar hún fræðilega heimildarýni og verklega rannsóknaraðferð þar sem hún endurgerir búninga, efni og vinnuaðferðir til að varpa nýju ljósi á þætti sem ritaðar heimildir einar ná ekki að skýra. Í samstarfi við gullsmiðinn Ásmund Kristjánsson, sem hefur endursmíðað skart búningsins, hefur hún rannsakað brúðarbúninginn í þaula og lagt fram mikilvæga þekkingu á gerð hans og efnivið.

Að leiðsögn lokinni kl. 15 mun Hildur leiða útsaumssamveru í barna- og fjölskyldurýminu á fyrstu hæð sem ber yfirskriftina Útsaumssamvera – Settu spor þín í blómagarð Guðrúnar en þar munu gestir kynnast blómstursaumi og leggja sitt af mörkum til sameiginlegs handverks sem verður varðveitt á safninu.

Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn. Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti í safnið og aðgangi á alla viðburði og sýningar safnsins gegn framvísun kortsins. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.

‍

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.