Hvenær
May 31, 2026
Kl. 14
Hvar
Barna- og fjölskyldurými

Verið velkomin í ævintýralega röð af listasmiðjum í Þjóðminjasafninu þar sem við sökkvum okkur inn í heim myndlistarinnar hennar Hilmu af Klint.

Hilmuskóli fer fram alla sunnudaga í maí og hefst kl. 14:00.

Hver tími stendur í um 1,5 klukkustund, og eru foreldrar beðnir um að vera með börnunum á meðan smiðjan fer fram. Enginn aðgangseyrir er í smiðjurnar og börn geta komið í staka smiðju eða allar smiðjurnar, og allt þar á milli.

Skynkortagerð - Litir, form og innri myndheimur

Í þessari listasmiðju skoðum við stóru myndröðina Tíu stærstu verkin eftir Hilmu af Klint. Í þessum litríku og kraftmiklu málverkum reyndi Hilma að kortleggja lífið sjálft – mismunandi aldursstig, tilfinningar og umbreytingar. Við kynnumst vinnuaðferðum hennar og skoðum hvernig myndir geta orðið að kortum yfir hugmyndir, tilfinningar og reynslu. Við veltum fyrir okkur ólíkum leiðum til að kortleggja heiminn – til dæmis með landakortum og hugkortum – og hvernig litir og form geta einnig orðið að myndrænu korti. Áður en sköpunin hefst leiðir kennari stutta hugleiðsluferð um litina þar sem þátttakendur fá að ímynda sér hvaða tákn, myndir eða tilfinningar hver litur vekur hjá þeim. Að því loknu skapa nemendur sitt eigið skynkort – myndrænt kort þar sem litir, form og tákn segja persónulega sögu og kortleggja heim ímyndunarinnar.

Um Hilmuskóla

Í Hilmuskólanum er hver listasmiðja eins og ferðalag. Við fylgjum vísbendingum úr verkum Hilmu – litum hennar, hringjum, línum og dularfullum táknum – og leyfum þeim að leiða okkur inn í skapandi rannsókn á tilbrigðum náttúrunnar. Hvað leynist undir yfirborðinu? Hvaða mynstur birtast þegar við hlustum álitina og leyfum formunum að tala? Verkefnin verða fjölbreytt og skapandi, þar sem þátttakendur fá að prófa ólíkar aðferðir, liti og form. Tímarnir verða þannig ævintýraleg samþætting listar, ímyndunar og uppgötvunar – þar sem sköpun, forvitni og dulúð fá að vaxa saman.

Hilmuskóli – þar sem listin opnar dyr að hinu ósýnilega!

Freyja Eilíf leiðir listasmiðjurnar og eru þær hluti af meistaraverkefni hennar í listkennslunámi við Háskóla Íslands. Þannig er um að ræða samstarfsverkefni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnsins.

Freyja Eilíf hefur reynslu af kennslu ágrunnskólastigi og leggur áherslu á skapandi og forvitnilega nálgun þar sem börn fá að kanna heim listarinnar á eigin forsendum. Athugið að óskað er eftir leyfi til að taka ljósmyndir af verkum barnanna. Myndirnar verða notaðar viðgerð námsgagna í lok listasmiðjanna.

Fyrirlesturinn:

Youtube-rás safnsins

Dagskrá

Fylgstu með

Skráðu þig á póstlista Þjóðminjasafnsins.

Þegar þú skráir þig á póstlista Þjóðminjasafnsins færðu boð á sýningaropnanir, fréttir af viðburðum og sýningum og tilboð í Safnbúð.

Takk!  Staðfestu skráninguna með því að smella á linkinn sem við vorum að senda þér.
Eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur.