Sögur, samvera og sköpun
Öflugt samstarf safns og grunnskóla
Sóley Ósk Hafberg Elídóttir kennari í Skóla Ísaks Jónssonar og Anna Leif Auðar Elídóttir safnkennari í Þjóðminjasafninu segja frá þemaverkefni nemenda skólans þar sem söfn eru notuð til að koma til móts við fjölbreyttar kennsluaðferðir og nálganir á viðfangsefni í kennslu. Fyrirlesturinn verður í fyrirlestrasal safnsins 26. apríl kl. 12 og í beinu streymi á YouTube.
Sóley Ósk Hafberg Elídóttir kennari í Skóla Ísaks Jónssonar og Anna Leif Auðar Elídóttir safnkennari segja frá þemaverkefnum nemenda sem þau hafa unnið yfir heilan vetur. Börnin koma einu sinni í mánuði í Þjóðminjasafnið, fyrir ýmis verkefni, en einnig fara þau á önnur söfn, svo sem Árbæjarsafn, Sjóminjasafn, Hvalasýningu, Safnahúsið, Kjarvalsstaði og Landnámssýninguna í Aðalstræti. Einnig í Húsdýragarðinn og Grasagarðinn.
Börnin hafa í tengslum við heimsóknirnar lært að umgangast safn, að tjá sig um það sem þau sjá og heyra, að sýna háttvísi og virðingu. Þau hafa lært um lífið í landinu í gegnum aldirnar með sögum og gripum, hreyfingu og leikjum, túlkun og sköpun.
Í verkefnunum voru ólík skynfæri virkjuð og með því móti höfðað til barna með ólíkar þarfir. Þannig eru söfnin notuð til að koma til móts við fjölbreyttar kennsluaðferðir og nálganir á viðfangsefni í kennslu. Lykil hugtök: ánægja nemenda, samstarf við foreldra, fagþekking kennara.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.500 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.