Fyrirlestur: Á stríðsárunum. Tónlist, dans og tíska
Ath. Fullbókað er í fyrirlestrasalinn. Við bendum gestum á beint streymi í gegnum YouTube.
Páll Baldvin Baldvinsson, rithöfundur mun flytja hádegisfyrirlestur 9. febrúar kl. 12 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Tilefnið er yfirstandandi ljósmyndasýning „Tónlist, dans og tíska“ með einstökum myndum Vigfúsar Sigurgeirssonar frá menningarlífi Reykjavíkurborgar á tímum seinni heimstyrjaldarinnar. Páll Baldvin er afar fróður um þetta tímabil í sögu þjóðarinnar og árið 2015 kom út bókin hans „Stríðsárin 1938-1945“. Margar sjaldséðar myndir Vigfúsar birtust einmitt í þeirri bók.
Sýningin „Tónlist, dans og tíska“ stendur fram til 14. mars. Á sýningunni má sjá dansmeyjar og tónlistarmenn í bland við einstakar myndir frá tískusýningu á Hótel Borg. Vigfús var einn allra þekktasti ljósmyndari og kvikmyndagerðamaður Íslands á fyrri hluta 20. aldar.
Vegna fjöldatakmarkana er nauðsynlegt að bóka sig hér eða hringja í síma 530 2202. Grímuskylda og 2 metra reglan gildir á safninu.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.
Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum.