Tækniminjasafnið á Seyðisfirði 124 dögum síðar
Zuhaitz Akizu forstöðumaður Tækniminjasafnsins á Seyðisfirði og Ágústa Kristófersdóttir framkvæmdastjóri safneignar Þjóðminjasafnsins flytja hádegisfyrirlestur um afleiðingarnar af aurskriðunum sem féllu á Seyðisfjörð í desember 2020 sem hrifu meðal annars með sér stóran hluta Tækniminjasafnins. Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 20. apríl kl. 12.
Ágústa fjallar um aðkomu Þjóðminjasafns, annarra safna og opinberra aðila að björgun og ræðir hlutverk höfuðsafnsins og viðbrögð við hamförum. Zuhaitz Akizu lýsir afleiðingum aurskriðanna á safnið og safnkostinn og ræðir hin ólíku skeið björgunaraðgerða allt frá fyrstu dögunum fram til dagsins í dag. Zuhaitz Akizu gerir einnig grein fyrir grisjun safnkostsins í kjölfar hamfaranna og reifar framtíðarhorfur safnsins. Boðið verður upp á umræður í kjölfar erindanna.
Ágústa og Zuhaitz Akizu voru einnig í viðtali í þættinum Víðsjá á Rás 1. Viðtalið má heyra hér og hefst á mínútu 35.54.
Hádegisfyrirlesturinn er í samvinnu við námsbraut í safnafræði í Háskóla Íslands.
Vegna fjöldatakmarkana er nauðsynlegt að bóka sæti í síma 530 2202. Grímuskylda og 2 metra reglan gildir á safninu. Fyrirlestrinum verður einnig streymt í gegnum Teams hér.
Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði í Þjóðminjasafni Íslands.
Verið öll velkomin.