Alþýðuskemmtanir í skammdeginu
NÓVEMBER 2018
Ljósmyndari: Sigfús Eymundsson. SEy-294.
Skemmtun hverskonar og dægrastytting af margvíslegu tagi er ekki neitt nýtt fyrirbæri og hafa menn nýtt sér hin ýmsu tilefni til samkomuhalds gegnum árin. Myndin hér er tekin árið 1897 og sýnir tvo herramenn sem hafa klætt sig upp í leikbúninga sem álfakóngur og álfadrottning. En samtímafrétt í blaðinu Ísland 16. janúar 1897 er góð lýsing á tíðarandanum og skemmtanahaldinu um þetta leyti:
„Blisför eða álfadans var haldinn hjer að kvöldi hins 10. þ. m. Þó voru það nú ekki skólapiltar sem geingust fyrir þeirri skemmtun, einsog venja hefur verið, heldur verslunarmenn, lærisveinar sjómannaskólans og margir fleiri. Eitthvað um 50 manns mun hafa tekið þátt í blisfórinni. Hún var haldin á Austurvelli og fór vel fram; búningar voru góðir og blisin entust betur en þau oft hafa gert áður. Álfakóngur var Gísli Jónsson verslunarmaður, en drottning Davíð Jh. Heilmann prentari.“
Álfar og trú á tilveru þeirra hefur fylgt Íslendingum um aldir og eru þeim gefnir margir mannlegir eiginleikar en samskipti við þá ávallt á vinsamlegum nótum því ógæfa fylgir því að gera eitthvað á hlut þeirra. En sá varnagli hefur ekki komið í veg fyrir að ímynd álfanna og lífsmáti sé nýttur af mannfólki sér til skemmtunar og hátíðarbrigða í svartasta skammdeginu enda fylgir álfum yfirleitt ljós og birta.
Þorvaldur Böðvarsson